HVER ER ÉG?

ÉG ER AUGA VINDSINS, OG EYRA ÞRUMUNAR, EN ÞIG SÉ ÉG EI NÉ HEYRI. ÉG ER LOGI ELDSINS OG BROTSJÓR HAFSINS. EN BÆNIR OG KVEINSTAFIR FINNA MIG EGI.

miðvikudagur, 5. mars 2014

REKA-ÞJÓFAR

Í Mundkoti mæna
menn á hafið græna
viðnum vilja ræna
vaskir nóg að stela
þraut er þyngri að fela
Mangi og Jón
eru mestu flón
minnstu ekki á hann Kela.
Þorleifur

1 ummæli:

  1. Viðarstaurum stálu þeir af Mundakotsreka og földu í fjóshaugnum að Mundakoti,

    SvaraEyða