HVER ER ÉG?

ÉG ER AUGA VINDSINS, OG EYRA ÞRUMUNAR, EN ÞIG SÉ ÉG EI NÉ HEYRI. ÉG ER LOGI ELDSINS OG BROTSJÓR HAFSINS. EN BÆNIR OG KVEINSTAFIR FINNA MIG EGI.

föstudagur, 7. mars 2014

Guðjón Jónsson

Guðjón sjáinn ýtir á
oft, þó láin rjúki blá,
hræðast má ei maður sá
marar fláu öskrin há.

Drafnar-ála kannar knör,
klýfur þjála Ægis-skör,
Hönd úr stáli heim í vör
honum "Njáli" beinir för.
Ókunnur

1 ummæli:

  1. Guðjón Jónsson á Litlu-Háeyri var 40 vertíðir formaður á Eyrarbakka.

    SvaraEyða