Guðmund arfa Ísleifs
má
oft á karfa
hlöðnum sjá,
hönd með djarfa,
hár með grá,
Hlés ber starfið
gott skyn á.
Lætur flakka
formaður
fokku-rakka
ótrauður,
eiðir stakka
alkunnur,
austur- »Bakka«
víkingur.
Þótt að hára
hvítni krans,
hlýðir »Ársæll«
boði manns,
enn þá knár við
Drafnar-dans,
drengur fár er
maki hans.Ókunnur
Guðmundur Ísleifsson á Háeyri, var farsæll og gætinn formaður. Kaupmaður var hann líka og óðalsbóndi.
SvaraEyða