Hve fagnandi
opnum við æskunnar dyr,
í angandi hásumar
gliti,
er draumurinn
rætist, sem dreymdi okkur fyr,
í daglegum önnum
og striti;
að hlusta á
niðinn, sem hafaldan ber,
og hittast að
nýju á ströndinni hér.
Að heilsa' ykkur
vinir, sem haldið hér vörð,
og hopuðu aldrei
úr spori,
og önnuðust hér
vora elskuðu jörð,
sem upp rís á
sérhverju vori.
Þið sandinum
hafið í sáðlendur breytt,
og sigrandi
vonunum leiðina greitt.
Og félag vort
þráir að leggja ykkur lið,
og leiðina á
milli okkar brúa.
Þótt veröldin
skjálfi í vopnanna klið,
að vináttu skulum
við hlúa,
og takast í
hendur og treysta þau bönd,
sem tvinnaði æskan á þessari strönd.Maríus Ólafsson
Engin ummæli:
Skrifa ummæli