Freyja, sporin
farsældar, feti um hvalaengi,
hlotnist vegur hagsældar, hlunnajóri' og mengi.
HVER ER ÉG?
ÉG ER AUGA VINDSINS, OG EYRA ÞRUMUNAR, EN ÞIG SÉ ÉG EI NÉ HEYRI. ÉG ER LOGI ELDSINS OG BROTSJÓR HAFSINS. EN BÆNIR OG KVEINSTAFIR FINNA MIG EGI.
Sýnir færslur með efnisorðinu Bitavísur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Bitavísur. Sýna allar færslur
laugardagur, 6. september 2014
Bitavísa Guðmundar Ólafssonar frá Sogni í Ölvesi, form. í Þorlákshöfn
Farsæll heitir
flæðajór,
firrtur öllu
grandi;
himnajöfur honum,
stór,
hlífi á sjó og landi.
Bitavísa af ókunnu Landeyjarskipi
Friðhéðinn mig
firðar kalla mega,
á sem róa eigið
mér, allir séu blessaðir.
Bitavísa Þórðar Grímssonar á Stokkseyri
Farsæll í för
allri
frið hljóli, liðs
njóli
almáttar-mund
Drottins,
marviðji þar
styðji,
sem heldur um
öldur,
auð gefi, nauð sefi,
svo hlöðnum frá
flæði
frílending í
sendi.
Bitavísa Guðmundar Þorkelssonar á Gamla-Hrauni
Að Bifur leiði um
báruheiði
og brandameiði,
lukku með
gefi veiði', en
grandi eyði,
guðs ég beiði
almættið.
Bitavísur Adolfs Adolfssonar á Slokkseyri
Blíðfari heitir
báturinn
Björg oss veiti'
af upsamýri.
Náðarhönd
drottins sérhvert sinn
signi, blessi' og
stýri.
„Farsæll "
heitir flæðabjörn
farsæld veiti
daginn hvern,
guðs háleita
gæzku-vörn;
guð varðveiti öll
sín börn.
Bitavísa Sigurðar Eyjólfssonar á Kaðlastöðum
Umsjón guðs og
aðstoð blíð
ullum- fylgi skeyta.
hlunnajórnum
farsæld fríð,
Fortúna má heita.
Bitavísa Gísla Magnússonar í Móhúsum.
Ég, „Björg",
liðs þíns bezta bið
blíði faðir allra
þjóða,
á hverja hlið,
þitt hjálpræðið,
hjá þér standi',
hið góða.
Bitavísa Jóns gamla Jónssonar á Vestri-Loftstöðum
„Guð miskunni nú
öllum oss
og gef'i blessun
sína".
(Upphaf á gömlum
sálmi)
Bitavísa Jóns yngri Jónssonar á Vestri-Loftstöðum
„Drotlinn hlíða
veiti vörn,
vorum lýð hvert
sinni,
menn og fríðan
borðabjörn
blessun skrýði
sinni".
Bitavísa Sigurðar gamla Sigurðssonar á Eystri-Loftstöðum
„Sigurbjörgin
hafi hylli' af himnakóngi sönnum.
Sigurbjörgin sæki
fylli, sínum eignarmönnum".
Bitavísa Páls Eyjólfssonar í Eystra-Íragerði:
Svanur afla sætti
feng um síldarheiði;
Blessun guðs og
blíðust náðin bragna leiði.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)