HVER ER ÉG?

ÉG ER AUGA VINDSINS, OG EYRA ÞRUMUNAR, EN ÞIG SÉ ÉG EI NÉ HEYRI. ÉG ER LOGI ELDSINS OG BROTSJÓR HAFSINS. EN BÆNIR OG KVEINSTAFIR FINNA MIG EGI.
Sýnir færslur með efnisorðinu Vísa: Óðinn. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Vísa: Óðinn. Sýna allar færslur

föstudagur, 21. mars 2014

Kveðið um Karl

Harpan kná skal hljóða há,
hlusti fljóð, en syngi menn.
Því nú skal Karl, ég kalla á,
með kvæðum mínum enn.

Birtast hér blöðin þín,
bæld um alla veggi.
Skjótt skal færa í rím,
og svara skálda seggi.

Gott er að vera galla laus,
greindur góður maður.
En bestur er þinn bjálkahaus,
þótt til bóka lítt sé lagður.


Lágur á velli og lotinn er,
en lofar þó drottinn sinn,
“Gull af manni gafstu mér,
 gef mér nú annan helminginn”.

“Enn skal hefjast hróður minn”,
um holt og hæðir hrópar,
Sjálfur fegri en fyrirmyndin,
fljóðum að sér sópar.

Haninn hælir egin ham,
hvergi smeikur stærir.
Seint mun skúmur líkjast svan,
sem egi móðann ærir.
'OK.

Alpan sálmurinn

Eyrarbakki, ó Eyrarbakki,
að það skuli vera hér,
eitt álpönnu fyrirtæki,
sem af öllu öðru ber.

Sjáið bara sjálfan “Lordinn”
sem keyrir fína Caprí, Fordinn.
Og “Stóri-Rauður” stendur stífur,
sem allan daginn málar skífur.

Og “Súpermann” stendur þar,
Maríus og allar síðri hetjurnar.
Sveittir, svartir steyparar,
Svika-Pétur og aumingjar.

Jarek í ofninum, og blessaða “Húfan”.
Anetta og Iwona, og Imba ljúfan.
Við erum svartir og sveittir,
og svakalega skítugir.

Henrý rennir, Hörður kennir,
en hundurinn ekki nennir,
“Svarti” steypir, Úlfur reykir,
og skelfing margir veikir.
'OK.

mánudagur, 10. mars 2014

Svanastóllinn

Flottir eru stólarnir, fallegir kjólarnir,
Fín er eftirlits frúin.
Peninga bófarnir og fjármála kjóarnir,
bossan hvíla lúinn.
o.k.

laugardagur, 8. mars 2014

BRIMVÍSUR

Unnar dætur feykja falda,
fagran stíga dans á sjá.
Á eftir stormi lifir alda,
undarlega brött og há,

Ómar ægis hörpu hljóð,
yfir húm og heima.
Á eftir fjöru fellur flóð,
og flæðir yfir hleina.
o.k.

fimmtudagur, 6. mars 2014

BAKKABÚÐ

Nú er Vesturbúð á bak og burt,
og bæjarbúar makka,
Fæst nú hvorki vott né þurt,
hér á Eyrarbakka.
o.k.

LANDSKJÁLFTI

Skjálfa fjöll og flóar,
falla tré og skógar.
Hugur hrís og óar,
er hristast mínir móar.
o.k.

Brim

Unnars dætur feykja falda,
Brim
fagran stíga dans á sjá.
Eftir storminn lifir alda,
undarlega brött og há,

Óma ægis hörpu hljóð,
yfir húm og heima.
Eftir fjöru fellur flóð,
og flæðir yfir hleina.
o.k.

KVEÐJA TIL VINAR

Síðan þín snjallra ljóða,
skelegga, sagnafróða.
Heyrandi hafsins hljóða.
Hendi þér kveðju góða.
o.k.

miðvikudagur, 5. mars 2014

FJALLABLÓÐ

Brunnin jörð og bráðið hraun,
bjart er fjallablóðið.
Eld er mörgum gangan raun,
er upp vill mannaflóðið.
o.k.

Í KAFFI HJÁ ÁRBORGU

Mikið er hún Árborg góð,
að gefa kaffið paurum.
Bagar ekki bæjarsjóð,
að blæða þessum aurum?
o.k.

þriðjudagur, 4. mars 2014

KIRKJUKLUKKAN


Klukkan er korter í níu,
korter í níu, klukkan tíu,
korter í níu klukkan tvo,
korter í níu klukkan sjö.
o.k.

KARTÖFLUR Á KRÓNU

Eyrarbakkakartöflur
kann ég vel að velja,
sem á Sandi Guðmundur
á Krónu vill selja.
o.k.

OF FJÖLGUN

Þeim fjölgar og fjölgar,
fjölgar og fjölgar,
fjölgar og fjölgar,
Fíflunum.
o.k.

ALLT EINS

Allt er það eins,
og ekki til neins,
aumingja liðið,
hans Gvendar Sveins.
o.k.

EINARS-HÖFN

Alveg Einar hafnar,
að á Bakka rísi,
í hverfi Einarshafnar,
hin nýtísku hýsi.
o.k.