Símon bóndi á Selfossi var sagður pólitískur og slunginn áróðursmaður segir Guðmundur Stefánsson, bóndi á sextugsaldri í Flóanum sem sendi okkur eftirfarandi vísu sem móðir hans kunni eftir Magnús Teitsson sem var Stokkseyrískur hagyrðingur.
Símon hefur beislað bæði
Bakka- og Flóamenn.
Lætur hanga á leyniþræði
lengi og marga í senn.
MT
Birt með leyfi Brim.123.is 2007